Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sindri Kristinn flytur til Svíþjóðar (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn öflugi Sindri Kristinn Ólafsson er búinn að kveðja Keflavík og íslenska boltann.

Sindri kom upp í gegnum yngri flokka Keflavíkur og þótti gríðarlega mikið efni. Hann var aðalmarkvörður U19 og U21 landsliðanna og lék í heildina 17 leiki fyrir yngri landsliðin.

Hann steig sín fyrstu skref í efstu deild íslenska boltans 2014 og hefur alla tíð leikið fyrir Keflavík að undanskildum tveimur árum þegar hann var aðalmarkvörður hjá FH tímabilin 2023 og 2024. Hann snéri svo aftur til Keflavíkur í fyrra og hjálpaði liðinu að endurheimta sæti í efstu deild.

„Keflavík og Sindri Kristinn Ólafsson hafa komist að samkomulagi um að Sindri láti af störfum hjá félaginu. Ástæðan fyrir brotthvarfinu er sú að unnusta Sindra er búsett erlendis og mun hann flytja búferlum til hennar," segir meðal annars í tilkynningu frá Keflavík.

Sindri flytur til Svíþjóðar til að vera með unnustu sinni, landsliðskonunni Guðrúnu Arnardóttur sem er mikilvægur hlekkur í sterku liði Hammarby.

„Keflavík hefur verið stór hluti af mínu lífi og það er alltaf heiður að spila fyrir félagið. Þetta var ekki auðveld ákvörðun, en Guðrún hefur fengið gott tækifæri til að halda áfram sínum ferli í Svíþjóð og ákváðum við því að taka þetta skref saman," sagði Sindri.

„Ég vil þakka liðsfélögum, þjálfurum og öllum í kringum félagið fyrir samstarfið og stuðninginn í gegnum árin. Vonandi liggja leiðir okkar saman í framtíðinni. Ég mun fylgjast vel með liðinu og óska Keflavík alls hins besta á komandi tímabili."

Sænski markvörðurinn Mirsad Basic hefur verið að æfa með Keflavík. Hann gæti komið til félagsins og veitt Ásgeiri Orra Magnússyni samkeppni um markmannsstöðuna fyrir komandi átök í Bestu deildinni.

   10.03.2026 12:30
Sænskur markvörður æfir með Keflavík

Athugasemdir
banner
banner
banner