Þeir Jonathan Hendrickx og Rodri þurftu að yfirgefa völlinn gegn KR á föstudag þegar KA vann öflugan 1-3 útisigur. Undir lok leiks sást líka að eitthvað var að hrjá Hrannar Björn Steingrímsson. Rodri fór af velli vegna höfuðhöggs sem hann fékk í fyrri hálfleik.
Arnar Grétarsson, þjálfari KA, var spurður út í stöðuna á þessum þremur leikmönnum fyrir leikinn gegn Leikni R. sem fram fer á Dalvík á morgun. Leikurinn er liður í 3. umferð Pepsi Max-deildarinnar.
Arnar Grétarsson, þjálfari KA, var spurður út í stöðuna á þessum þremur leikmönnum fyrir leikinn gegn Leikni R. sem fram fer á Dalvík á morgun. Leikurinn er liður í 3. umferð Pepsi Max-deildarinnar.
„Hrannar er pottþétt frá í einhvern tíma, veit ekki hvað það verður lengi. Það er innra liðbandið, hliðarliðbandið sem er eitthvað skaddað. Það gæti tekið 2-5 vikur. Rodri er svo spurningamerki, það er spurning hvort leikurinn á morgun komi of fljótt, við vitum það ekki og vitum ekki fyrr en á morgun," sagði Addi.
Vladan Djogatovic gekk í raðir KA á föstudaginn á láni frá Grindavík. Addi var spurður hvort markvörðurinn yrði í hóp?
„Já, ég á von á því." Gefuru eitthvað upp hvort hann muni byrja leikinn?
„Hann er ekki að fara byrja. Stubbur er búinn að standa sig frábærlega. Hann er að koma sem samkeppni og mun berjast fyrir stöðunni. Stubbur er búinn að vinna sér rétt á að halda stöðunni. Vonandi heldur hann því áfram."
Hvernig er staðan á Jonathan Hendrickx?
„Jonathan er held ég mjög ólíklegur. Ég á eftir að sjá hann á æfingu, hann hefur ekkert æft með okkur."
Þorri Mar Þórisson vakti athygli á föstudaginn fyrir flotta innkomu gegn KR.
„Þorri er í fínu stundi og eina spurningin hvað getur hann þolað margar mínútur. Hann er pottþétt að fara starta. Svo er spurning hvað þorir maður að láta hann spila lengi. Hann hefur verið að fá tognanir og það kemur oft þegar menn eru orðnir þreyttir. Þeir eru fljótir bræðurnir (Nökkvi Þeyr og Þorri Mar eru tvíburabræður) og með stutta vöðvaþræði þannig maður verður að passa þá."
„Þorri er gríðarlega öflugur leikmenn eins og þeir báðir eru. Þetta eru strákar sem eru góðir fótboltamenn og með gott líkamlegt atgervi. Þeir eru báðir mjög fljótir og geta hlaupið. Þeir hafa margt til brunns að bera en eina sem er að þeir hafa verið miklir meiðslakallar og það er náttúrulega alltaf bagalegt. Þeir hafa rosalega margt til að verða mjög góðir knattspyrnumenn," sagði Addi að lokum.
Hlusta má á umræðu um sigur KA gegn KR í spilaranum hér að neðan.
Athugasemdir