Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
   mán 11. maí 2026 20:43
Alexander Tonini
Hrafnhildur Ása: Búin að bíða eftir stærra hlutverki og mitt að grípa það
Kvenaboltinn
Hrafnhildur Ása býr yfir miklum hæfileikum í fótbolta
Hrafnhildur Ása býr yfir miklum hæfileikum í fótbolta
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það má sannarlega tala um meistaraheppni á Kópavogsvelli í kvöld þegar Blikar stálu hreinlega sigrinum í uppbótartíma. En fótboltinn spyr ekki um sanngirni heldur bara um úrslit og 3-2 lokasvarið.

En hvernig fannst Hrafnhildi frammistaða liðsins annars?

„Frammistaðan var ekkert spes en við sýndum mikin karakter að klára leikinn."

Lestu um leikinn: Breiðablik 3 -  2 Valur

Sóknarleikur Blika var rosalega bitlaus og hugmyndasnauður í kvöld þrátt fyrir að spila leikmanni fleiri frá 18. mínútu leik þegar Hrafnhildur Salka Pálmadóttir fékk að líta rauða spjaldið beint fyrir hártog. En hver var ástæðan fyrir bitlausum sóknarleik Blika hér í kvöld?

„Þær (Valur) lágu mjög lágt með allt liðið sitt og við hefðum kannski átt að vera þolinmóðari á boltann. Við vorum svolítið að reyna að þvinga eitthvað."

Mesta ógn Blika kom þegar boltinn var í kringum Hrafnhildi Ásu og munaði engu að hún hafi jafnað metin á 83. mínútu leiks þegar skot hennar fór í inannverða stöngina

„Ég hélt að hann væri að fara inn, þetta var mjög svekkjandi."

Hvernig líður Hrafnhildi með að vera komin í stærra hlutverk en í fyrra?

„Bara mjög vel ég er búin að bíða eftir þessu tækifæri að vera í stærra hlutverki. Núna er það mitt að grípa það og sýna í hvað mér býr."

Slapp
banner
banner