Meira en fótboltaleikur

Noussair Mazraoui fæddist í Hollandi.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Bæði lið eru ósigruð á HM til þessa.

Mynd: EPA

Noussair Mazraoui fæddist í Hollandi.

Mynd: EPA
Ein safaríkasta viðureignin í 32-liða úrslitum HM verður klukkan 1 í nótt þar sem Holland og Marokkó eigast við. Beðið er eftir leiknum með mikilli eftirvæntingu.
Hundruðir þúsunda hollenskra ríkisborgara eru af marokkóskum uppruna. Á sjöunda áratug síðustu aldar var mikill fólksflutningur Marokkóa til Hollands.

TENGT EFNI
Marokkó setti sérstakt met á HM
Á árum áður var það ríkjandi að hollenskir leikmenn af marokkóskum uppruna völdu að spila fyrir Holland ef þeir voru nægilega góðir. Þetta hefur breyst og sífellt fleiri velja að spila fyrir Marokkó.
Dries Boussatta varð fyrsti hollenski leikmaðurinn af marokkóskum uppruna til að spila fyrir Holland. Það var þegar Frank Rijkaard gaf honum hans fyrsta landsleik 1998, gegn Þýskalandi.
Boussatta átti síðar eftir að leika tvo leiki fyrir Marokkó eftir að hafa spilað þrjá leiki fyrir Holland. Reglur FIFA á þessum tíma leyfðu skiptin þar sem leikirnir með Hollandi voru vináttulandsleikir.
Hakim Ziyech er eitt þekktasta nafnið sem hefur spilað fyrir Marokkó en fæddist í Hollandi. Hann lék fyrir yngri landslið Hollands en segist hafa hlustað á hjarta sitt þegar hann ákvað að spila fyrir Marokkó. Hann var ekki valinn í hóp Marokkó fyrir HM sem nú stendur yfir. Hann er 33 ára og leikur í dag fyrir Wydad í Marokkó.
Þess má geta að nítján af 26 manna leikmannahópi Marokkó fæddist ekki í Marokkó. Í jafnteflinu gegn Brasilíu í riðlakeppninni varð Marokkó fyrsta lið HM sögunnar til að tefla fram byrjunarliði þar sem allir leikmenn fæddust utan landsins.
Þetta er engin tilviljun því fyrir áratug byrjaði fótboltasamband Marokkó að fjárfesta í að finna hæfileikaríka leikmenn um alla Evrópu sem væru af marokkóskum uppruna. Njósnarar voru sendir til Frakklands, Belgíu, Spánar og Hollands. Ekki bara til að fylgjast með leikmönnunum heldur styrkja tengsl við þá og fjölskyldur þeirra áður en kemur að því að þeir velji fyrir hvaða þjóð þeir spila.