Leiknir F. vann í gær 2-1 útisigur á Tindastól á Sauðárkróksvelli í 2. deild karla.
Þetta var fyrsti sigur Leiknis F. á útivelli síðan árið 2016 þegar liðið sigraði HK í lokaumferðinni í Inkasso-deildinn 7-2 og bjargaði sér þar með frá falli á ótrúlegan hátt.
Þetta var fyrsti sigur Leiknis F. á útivelli síðan árið 2016 þegar liðið sigraði HK í lokaumferðinni í Inkasso-deildinn 7-2 og bjargaði sér þar með frá falli á ótrúlegan hátt.
Tímabilið 2017 lék liðið í Inkasso-deildinni þar sem liðið tapaði öllum ellefu útileikjum sínum í deildinni og féll niður í 2. deildina það tímabilið.
Í fyrra endaði liðið í 10. sæti 2. deildarinnar, stigi frá falli. Þar náði liðið í þrjú jafntefli á útivelli en tapaði hinum átta leikjunum.
Þetta lítur hinsvegar allt miklu betur út hjá liðinu í ár. Liðið er eina taplausa liðið í 2. deildinni með 12 stig í 3. sæti deildarinnar, stigi á eftir Selfossi og Víði sem eru í toppsætunum. Liðið hefur spilað þrjá útileiki í sumar og náð í fimm stigum í þeim leikjum.
Athugasemdir