Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kópavogsbúum boðið á sögulegan leik
Kvenaboltinn
Mynd: Kópavogsbær - Samsett
Það er Kópavogsslagur í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á morgun þegar Íslandsmeistarar Breiðabliks fá Lengjudeildarlið HK í heimsókn á Kópavogsvöll. Leikurinn hefst klukkan 20.

Leikurinn er sögulegur þar sem Kópavogsliðin, Breiðablik og HK, mætast í fyrsta skipti í meistaraflokki kvenna.

Í tilefni tímamótanna og 70 ára afmælisárs Kópavogsbæjar er Kópavogsbúum boðið á leikinn og eru allir íbúar hvattir til að fjölmenna á leikinn og styðja við stelpurnar.

„Kvennafótboltinn hefur alltaf verið mjög sterkur í Kópavogi og við viljum að sjálfsögðu fagna þessum tímamótum með Kópavogsbúum þegar HK og Breiðablik mætast í fyrsta sinn í meistaraflokki. Þá styttist í EM kvenna í fótbolta og stærsta fótboltamót sumarsins á Íslandi, Símamótið, þegar stelpur um allt land mætast í Kópavogi um miðjan júlí. Við viljum styðja við stelpur í fótbolta og teljum því tilvalið að nýta tækifærið nú þegar Kópavogsliðin eru að mætast í bikarúrslitum. Ég vona að sem flestir Kópavogsbúar mæti á Kópavogsvöll og styðji sitt lið - já eða bara bæði Kópavogsliðin.“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.
Athugasemdir
banner
banner