Fotbolti.net
11.06.25 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkasta lið 8. umferðar - Kom mark ársins þarna?

FH hefur leikið mjög vel í sumar.

FH hefur leikið mjög vel í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Áttunda umferðin í Bestu deild kvenna kláraðist á dögunum og í kvöld og á morgun heldur bikarinn áfram. Leikið er í átta-liða úrslitum og verður spennandi að sjá hvaða lið komast í undanúrslitin.

Þróttur er á toppi Bestu deildar kvenna eftir átta leiki en þær eru með 22 stig og eru enn taplausar. Þróttarar lögðu Þór/KA á dögunum og þar var María Eva Eyjólfsdóttir frábær en maður leiksins var Mollee Swift í marki Þróttar.


FH vann stórgóðan sigur á Víkingum þar sem Thelma Karen Pálmadóttir skoraði mögulega mark mótsins hingað til. Hin 17 ára gamla Thelma Karen er í liði umferðarinnar í þriðja sinn í sumar en liðsfélagar hennar, Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Maya Hansen komast einnig í liðið.



Nýliðar Fram skelltu sér upp í fimmta sæti deildarinnar með sigri á Stjörnunni. Framarar eru með tólf stig eftir sjö leiki og hafa spilað frábærlega að undanförnu. Murielle Tiernan var maður leiksins og þá voru Dominigue Bond-Flasza og Kam Pickett frábærar í leiknum. Óskar Smári Haraldsson er þjálfari umferðarinnar.

Breiðablik vann stórsigur á FHL, sem er enn án stiga. Birta Georgsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir fóru fyrir liði Blika í þessum stórsigri, 6-0.

Þá var hin stórefnilega Elísa Bríet Björnsdóttir best þegar Tindastóll gerði jafntefli við Val. Sterkt stig hjá Stólunum en áfram halda vandræði Vals áfram.

Fyrri lið umferðarinnar
Sterkasta lið 7. umferðar - Þrisvar í röð eftir hæga byrjun
TENGT EFNI

Sterkasta lið 7. umferðar - Þrisvar í röð eftir hæga byrjun


Sterkasta lið 6. umferðar - Mikill munur á þessum liðum
TENGT EFNI

Sterkasta lið 6. umferðar - Mikill munur á þessum liðum


Sterkasta lið 5. umferðar - Léku sína gömlu félaga grátt
TENGT EFNI

Sterkasta lið 5. umferðar - Léku sína gömlu félaga grátt


Sterkasta lið 4. umferðar - Þrjár sem eru í annað sinn
TENGT EFNI

Sterkasta lið 4. umferðar - Þrjár sem eru í annað sinn


Sterkasta lið 3. umferðar - Fjögur lið jöfn á toppnum og nýliðar án stiga
TENGT EFNI

Sterkasta lið 3. umferðar - Fjögur lið jöfn á toppnum og nýliðar án stiga


Sterkasta lið 2. umferðar - Veisla hjá Víkingum og 17 ára að brillera
TENGT EFNI

Sterkasta lið 2. umferðar - Veisla hjá Víkingum og 17 ára að brillera


Sterkasta lið 1. umferðar - Miðja framtíðarinnar
TENGT EFNI

Sterkasta lið 1. umferðar - Miðja framtíðarinnar

Murielle var maður leiksins í sterkum sigri Fram.

Murielle var maður leiksins í sterkum sigri Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Berglind Björg er í liði umferðarinnar í þriðja sinn í sumar.

Berglind Björg er í liði umferðarinnar í þriðja sinn í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mollee Swift, markvörður Þróttar.

Mollee Swift, markvörður Þróttar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elísa Bríet er einn efnilegasti leikmaður deildarinnar.

Elísa Bríet er einn efnilegasti leikmaður deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.