Fotbolti.net
11.06.26 - 19:23
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu fyrsta mark HM: Hræðileg mistök hjá Suður-Afríku

Sjáðu fyrsta mark HM: Hræðileg mistök hjá Suður-Afríku
Canon

Mynd: EPA

Fyrsta markið er komið á HM en það var mexíkóski leikmaðurinn Julian Quinones sem skoraði það á níundu mínútu eftir klaufagang í vörn Suður-Afríku.
Heimamenn í Mexíkó hafa verið mun áræðnari í byrjun leiks. Raul Jimenez átti hörkuskot sem Ronwen Williams varði stórkostlega, en það reyndist aðeins aðvörun áður en fyrsta markið kom.

Einhver sofandaháttur var í vörn Suður-Afríku í uppspilinu sem varð til þess að Erik Lira mætti ákafur að varnarmanni liðsins. Boltinn datt út á Quinones, sem keyrði í átt að teignum áður en hann skaut þéttingsföstu skoti á milli fóta hjá Williams.

Ísinn er brotinn og vonandi fáum við enn fleiri mörk í opnunarleiknum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.