Fotbolti.net
11.07.17 - 12:53
Arnar Daði Arnarsson

Davíð Þór: Enginn frændi minn í liðinu

Auglýsing
Davíð Þór: Enginn frændi minn í liðinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

„Þeir eru vel skipulagðir. Allavegana í þessum tveimur leikjum gegn liðinu frá Kosovó, Trepca. Þá lágu þeir til baka og beittu skyndisóknum og þeir gerðu það mjög vel. Við megum eiga von á sama frá þeim á morgun,\" sagði Davíð Þór Viðarsson fyrirliði FH sem mætir toppliðinu í færeysku úrvalsdeildinni, Víking Göta í forkeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
„Ég hugsa að þetta væri stál í stál. Þó svo að við séum hærra skrifað á pappírunum og það eru kannski margir sem búast við því að þetta verði auðvelt fyrir okkur. En það sem ég hef séð af þeim þá væri þetta Víkings-lið gott Pepsi-deildar lið. Sérstaklega í ljósi þeirra stöðu sem við erum í, í deildinni þá megum við alls ekki vanmeta einn né neinn, hvað þá lið sem er á góðu skriði bæði heimafyrir og í Evrópukeppninni. Við þurfum að vera 100% klárir,\" sagði Davíð Þór sem segist vonast til að Evrópukeppnin hjálpi FH-liðinu upp á framhaldið á tímabilinu.

„Mér fannst við vera komnir á ágætis ról þegar við tókum þrjá sigurleiki í röð, þó svo að ÍBV og Fylkis leikirnir hafi ekki verið fallegur fótbolti þá náðum við að vinna leikina og þá var Blikaleikurinn góður. Síðan kom leikurinn gegn Víking Ólafsvík sem var rosalega langt frá því að vera góður. Ég hef samt enn trú á því að við séum hægt og rólega að finna taktinn. Ég vona það og það hefur verið þannig áður fyrr að við höfum náð að nýta þessa Evrópukeppni í það að koma okkur ennþá betur í gang.\"

Bræðurnir, Davíð Þór og Bjarni Þór sem er þó að glíma við meiðsli eru ættaðir frá Færeyjum. Davíð Þór nær þó líklega ekki að heimsækja skyldmenni sín í Færeyjum í næstu viku.

„Það er nú enginn frændi minn í liðinu. Þetta er síðan alltof stutt ferð sem við förum til Færeyja í næstu viku. Við förum út á mánudegi, leikur á þriðjudegi og heim á miðvikudegi. Annars hefði maður hringt í skyldmennin og sett saman einhverja veislu. Þau hljóta að koma að horfa og ég læt þau fá FH-treyjur og þau hvetja okkur til dáða,\" sagði Davíð Þór léttur að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Davíð Þór: Enginn frændi minn í liðinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.