11.08.26 - 16:40
Innkastið
Ef hann er ekki á deginum sínum er ekkert í gangi

Ágúst Orri fann sig ekki gegn Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Myles Veldman.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Orri fann sig ekki gegn Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik tapaði 1-3 fyrir Val í Bestu deildinni á sunnudaginn en Kópavogsliðið hefur fengið talsverða gagnrýni að undanförnu fyrir lítið skemmtanagildi og jafnvel andleysi.
Í Innkastinu var talað um stemningsleysi í stúkunni í leiknum gegn Val.
„Ég er ekki hissa á að það sé ekki stemning í kringum Blikaliðið. Þetta er agalegt," segir Valur Gunnarsson, sérfræðingur Innkastsins, um spilamennsku Blika.
„Ég hef hlerað marga Blikastuðningsmenn sem eru orðnir þreyttir á þessu svo er maður að heyra sögur núna að leikmenn séu þreyttir á því að spila þennan leikstíl."

TENGT EFNI
„Versta við Blika að það er ekki skemmtilegt að horfa á þá“
Myles Veldman var geggjaður í bakverði Vals í leiknum og lokaði á Ágúst Orra Þorsteinsson, hæfileikaríkasta leikmann Breiðabliks.
„Að mínu mati var Veldman í vinstri bakverðinum hjá Val maður leiksins. Hann var með Ágúst Orra í teskeið allan leikinn. Af hverju er ekki prófað að skipta um kant? Ágúst Orri var í gjörgæslu, prófaðu að henda honum á hinn kantinn," segir Valur.
„Það voru umboðsmenn mættir að horfa á Ágúst í þessum leik. En það er áhyggjuefni fyrir Blika ef Ágúst Orri er ekki á deginum sínum þá er bara ekkert í gangi í sókninni hjá þeim."
Fram kom í þættinum að hollenska félagið Excelsior í Rotterdam hafi verið með útsendara í stúkunni að fylgjast með Ágústi.