Fotbolti.net
11.08.26 - 17:15
Víðir Sigurðsson

Eiður skoraði 100. markið

Eiður Gauti Sæbjörnsson fagnar öðru markanna gegn Fram í gærkvöld.

Eiður Gauti Sæbjörnsson fagnar öðru markanna gegn Fram í gærkvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Gauti Sæbjörnsson sóknarmaður KR skoraði sitt 100. deildamark á ferlinum í gærkvöld þegar Vesturbæjarliðið vann toppslaginn gegn Fram. Eiður skoraði fyrst 99. markið á 6. mínútu og kom KR í 2-0 og síðan 100. markið á 29. mínútu þegar hann kom KR í 3-0.
Eiður Gauti, sem er 27 ára gamall, er uppalinn í HK og skoraði fyrsta deildamarkið á ferlinum fyrir HK gegn Keflavík í 1. deild í lokaumferð tímabilsins 2018. Hann spilaði ekkert með meistaraflokki HK næstu fimm árin en spilaði hins vegar með Ými, venslafélagi HK, í 3. og 4. deild og skoraði þar 71 mark í 60 leikjum. Hann kom síðan inn í lið HK í Bestu deildinni árið 2024 og skoraði þá þrjú mörk í 13 leikjum og vakti talsverða athygli.

Eiður gekk að tímabilinu loknu til liðs við KR, þar sem faðir hans Sæbjörn Guðmundsson gerði garðinn frægan á sínum tíma, og skoraði 14 mörk í Bestu deildinni í fyrra þar sem hann varð þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. Hann er á góðri leið með að bæta þann árangur en Eiður er á ný orðinn þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar í ár með 11 mörk.

Víðir Sig: KR sló markametið - Skoraði 100. markið - Í fyrsta sinn á Akureyri í 36 ár
TENGT EFNI

Víðir Sig: KR sló markametið - Skoraði 100. markið - Í fyrsta sinn á Akureyri í 36 ár

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.