11.08.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Slot: Ekki rétti tímapunkturinn

Við hvaða liði tekur Slot næst?

Mynd: EPA

Við hvaða liði tekur Slot næst?

Mynd: EPA
Arne Slot viðurkennir að hollenska fótboltasambandið hafi haft samband við sig í leit að nýjum landsliðsþjálfara.
„Þetta voru viðræður sem fóru ekki langt. Það væri heiður að stýra landsliði þjóðar minnar einn daginn en þetta er ekki rétti tímapunkturinn. Á þessu stigi ferilsins vil ég halda mig í félagsliðabolta og vinna með leikmönnum mínum daglega á æfingasvæðinu," segir Slot.

TENGT EFNI
Hollenska sambandið hefur rætt við Slot
Slot var tvö tímabil sem stjóri Liverpool og vann enska meistaratitilinn á fyrra árinu. Það gekk illa seinna árið og hann var látinn taka pokann sinn eftir að Liverpool hafnaði í fimmta sæti.
Holland er án landsliðsþjálfara en Ronald Koeman lét af störfum eftir heimsmeistaramótið.
Holland er án landsliðsþjálfara en Ronald Koeman lét af störfum eftir heimsmeistaramótið.