11.08.26 - 15:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Synir þjálfaranna á bekknum
Hefur það gerst áður?

Þjálfararnir, Halli og Bói.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bói í baráttunni við Halla í leik FH og Keflavíkur 2013. Báðir eru þeir uppaldir Keflvíkingar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Þjálfararnir, Halli og Bói.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Rúnar Leó Hólmarsson og Aron Freyr Haraldsson voru á varamannabekk Keflavíkur gegn Stjörnunni á sunnudag. Rúnar Leó er fæddur 2008 og Aron Freyr er fæddur 2007.
Í Innkastinu, þar sem umferðin í Bestu deildinni er gerð upp, var vakin athygli á því að þeir væru synir þjálfaranna í Keflavík.
Rúnar Leó er sonur Hólmars Arnar Rúnarssonar aðstoðarþjálfara og Aron Freyr er sonur aðalþjálfarans Haralds Freys Guðmundssonar.

„Bæði sonur Bóa (Hólmars Arnar) og Halla voru á bekknum. Hefur þetta gerst áður að synir aðal- og aðstoðarþjálfarans séu á bekknum?" velti Valur Gunnarsson fyrir sér í þættinum.
Fótbolti.net ræddi við Jónas Guðna Sævarsson, yfirmann fótboltamála hjá Keflavík, um leikmennina.
„Sonur hans Halla, Aron Freyr, er hafsent eins og Halli. Hann spilar með 2. flokki og er hörku efnilegur drengur sem er búinn að æfa með meistaraflokki á nokkrum æfingum. Hann er virkilega efnilegur og við vonum að hann taki skrefið í vetur og geri jafnvel tilkall í að vera meira með á næsta ári."
„Rúnar, sonur Bóa, er kantmaður og virkilega efnilegur líka. Hans helsti styrkleiki er tæknin, hann er virkilega góður í því að taka menn á. Þeir eru að standa sig virkilega vel með 2. flokki sem er að standa sig vel í A-riðli og að gera gott mót. Rúnar var búinn að vera í hópnum í leikjum á undan og kom inn á sínum fyrsta leik á sunnudaginn," segir Jónas Guðni.