Fotbolti.net
11.08.26 - 16:30
Innkastið

Héldu hreinu í fyrsta sinn í sumar - Dýrkeypt gifting Árna?

Stjarnan hélt hreinu í fyrsta sinn í sumar á sunnudaginn.

Stjarnan hélt hreinu í fyrsta sinn í sumar á sunnudaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Darri Bergmann Gylfason stóð í marki Stjörnunnar gegn Keflavík síðastliðinn sunnudag í fjarveru Árna Snæs Ólafssonar sem var að gifta sig kvöldið áður.

Leikurinn var sá fyrsti sem Darri spilaði í efstu deild en hann var sóttur til Stjörnunnar frá Augnabliki í vetur. Leikar enduðu 1-0 Stjörnunni í vil og var þetta í fyrsta sinn sem Stjarnan heldur hreinu í sumar.
Jón Þór staðfestir að Árni Snær sé í fríi - Var að gifta sig
TENGT EFNI

Jón Þór staðfestir að Árni Snær sé í fríi - Var að gifta sig

„Ég myndi halda það, ekki spurning,“ sagði fyrrum markvörðurinn Valur Gunnarsson í Innkastinu aðspurður um hvort að hann héldi að Darri myndi byrja næsta leik.

Árni Snær hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu en Stjarnan hefur fengið á sig 43 mörk, næst mest allra í deildinni.

„Mér finnst þetta svolítið áhugaverð tímasetning á giftingu. Íslandsmótið er um sumar og hann veit það vel. Við erum alltaf að reyna gera deildina stærri og meiri og svo er aðalmarkvörður Stjörnunnar frá í mikilvægum leik,“ sagði Valur Gunnarsson jafnframt í þættinum.

„Maður hefur heyrt það að Árni hefur oft íhugað það að hætta. En Jökull hefur sannfært hann um að vera áfram. Kannski er hugurinn mögulega farinn að leita annað,“ sagði Gunnar Jarl Jónsson að lokum.
Árni Snær Ólafsson hefur átt erfitt tímabil.

Árni Snær Ólafsson hefur átt erfitt tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - KR getur orðið Íslandsmeistari

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.