11.08.26 - 11:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Evrópubikar kvenna: Íslensku liðin til Kýpur og Rúmeníu

Breiðablik og FH eru á toppi Bestu deildarinnar sem stendur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik og FH eru á toppi Bestu deildarinnar sem stendur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag var dregið í 1. umferð forkeppninnar í Evrópubikar kvenna og voru tvö íslensk lið í pottinum. FH vann sér inn þátttökurétt með því að enda í 2. sæti Bestu deildarinnar í fyrra og Íslandsmeistararnir í Breiðabliki misstu af sæti í 3. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni en unnu leik um sæti í þessari keppni gegn meisturunum frá Belarús.
Breiðablik mætir rúmenska liðinu FK Csíkszereda og FH mætir Apollon frá Kýpur.
Spilað er heima og að heiman, spilað verður 26. ágúst og svo 2. september. Breiðablik byrjar á heimavelli en FH á útivelli.
24 lið voru í pottinum, sigurvegarnir tólf fara áfram í næstu umferð og þar koma inn 20 lið úr forkeppni Meistaradeildarinnar.