11.08.26 - 18:08
Brynjar Ingi Erluson
Mónakó ætlar að rifta samningi Pogba eftir enn ein meiðslin

Paul Pogba meiddist í annað sinn á undirbúningstímabilinu

Mynd: EPA

Mónakó hefur tekið ákvörðun um að rifta samningi franska miðjumannsins Paul Pogba, en þetta kemur fram í franska miðlinum Nice-Matin.
Pogba hefur enn einu sinni orðið fyrir meiðslum hjá Mónakó. Frakkinn meiddist aftan í læri á æfingu liðsins og er aftur kominn á sjúkralistann.
Hann samdi við Mónakó á síðasta ári eftir að hafa tekið út átján mánaða bann fyrir brot á lyfjareglum.
Pogba vonaðist til að fá nýtt upphaf hjá félaginu eftir erfið ár þar sem meiðsli settu stöðugt strik í reikninginn. Honum hefur þó ekki tekist að hrista þau af sér.
Nice-Matin segir Mónakó nú hafa gefist upp á að reyna að koma ferli Pogba aftur af stað. Félagið vinnur að því að rifta samningi hans og hefur þegar greint leikmanninum frá þeirri ákvörðun.
Nú þarf að finna fjárhagslega lausn sem allir geta sætt sig við. Búist er við að Mónakó greiði Pogba þau laun sem hann á inni.
Pogba lék aðeins einn hálfleik á undirbúningstímabilinu áður en hann meiddist á hné og missti af næstu fjórum leikjum.
Hann sneri aftur til æfinga síðasta föstudag en meiddist á ný og fer í frekari rannsóknir á næstu dögum.
Pogba er 33 ára gamall og gegndi lykilhlutverki þegar Frakkland varð heimsmeistari árið 2018. Hann átti einnig góð ár hjá Juventus undir stjórn Antonio Conte og lék síðar með Manchester United.