Fotbolti.net
11.08.26 - 18:41
Brynjar Ingi Erluson

Mikael Neville og Tómas Óli ekki í Meistaradeildina

Mikael Neville kom við sögu í leiknum

Mikael Neville kom við sögu í leiknum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Danska félagið AGF er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir 4-0 skell gegn Sabah Baku frá Aserbaísjan í síðari leik liðanna í þriðju umferð forkeppninnar.
AGF vann fyrri leikinn gegn Sabah, 2-1, og fór því með ágætt veganesti inn í síðari viðureignina en þar gekk hinvegar fátt upp.

Sabah skoraði fjögur mörk á hálftíma í síðari hálfleik og flaug áfram á meðan AGF féll niður í umspil Evrópudeildarinnar.

Mikael Neville Anderson kom inn af bekknum hjá AGF en Tómas Óli Kristjánsson sat allan tímann á varamannabekknum.

Andstæðingur AGF í umspilinu verður að öllum líkindum portúgalska stórliðið Benfica sem vann Hearts, 6-1, í fyrri leik liðanna.

Það yrði gríðarlega erfitt verkefni fyrir AGF sem hefur þó að minnsta kosti tryggt sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.