11.08.26 - 14:06
Elvar Geir Magnússon
Sveinn Aron Guðjohnsen til Víkings (Staðfest)
Skrifaði undir hálfs árs samning

Sveinn Aron skrifaði undir stuttan samning.

Mynd: Víkingur

Sveinn Aron lék síðast fyrir landsliðið 2023.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Sveinn Aron Guðjohnsen er genginn í raðir Íslandsmeistara Víkings og skrifar undir samning út árið. Vísir greindi fyrst frá þessu og félagið staðfesti svo skiptin í kjölfarið.
Fram kemur í tilkynningu Víkings að hann ætli að hjálpa félaginu í lokabaráttunni um íslandsmeistaratitilinn og áframhaldandi sókn í Evrópu.
„Svenni spilaði sinn síðasta leik í lok apríl þannig að leikformið er kannski ekki uppá 10 en hann hefur æft vel og hefur núna 1-2 vikur til þess að komast í alvöru stand. Hann er hungraður og ætlar sér aftur erlendis að spila og gæti þetta verið frábær gluggi fyrir hann að sýna sig og jafnframt hjálpað okkur á öllum vígstöðum," segir Kári Árnason yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
Þess má geta að afi Sveins, Arnór Guðjohnsen lék fyrir Víking fyrir tæpum 50 árum, áður en hann fór út í atvinnumennskuna.

Hinn 28 ára gamli Sveinn Aron lék síðast með Cavese í ítölsku C-deildinni. Hann hefur spilað 20 landsleiki fyrir Íslandi og skorað tvö mörk. Hann hefur ekki spilað fyrir landsliðið síðan 2023.
Mikið hefur verið rætt og ritað um meiðslavandræði Víkings og liðið hefur verið að vinna hörðum höndum á leikmannamarkaðnum. Á dögunum gekk Hrannar Snær Magnússon til liðs við félagið og spilaði sinn fyrsta leik í 2-2 jafnteflinu gegn ÍBV.
Hér á landi lék Sveinn Aron með HK, Val og Breiðabliki áður en hann hélt út í atvinnumennsku þar sem hann hefur spilað á Ítalíu, Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi og Noregi.
Víkingur er með sex stiga forystu á toppi Bestu deildarinnar en hægst hefur á stigasöfnun liðsins síðustu vikur meðfram þéttri leikjatörn vegna Evrópuleikja. Sveinn Aron verður ekki löglegur í seinni leiknum gegn Thun á fimmtudag en fyrsti leikurinn gæti verið gegn FH á sunnudag, þar sem hann gæti mætt frænda sínum Arnóri Borg, fyrrum leikmanni Víkings.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 18 | +42 | 45 |
| 2 | KR | 18 | +25 | 39 |
| 3 | Fram | 18 | +11 | 37 |
| 4 | Breiðablik | 18 | +6 | 29 |
| 5 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 6 | ÍA | 18 | -6 | 22 |
| 7 | Keflavík | 18 | -6 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 18 | -9 | 17 |
| 10 | FH | 18 | -10 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 18 | -26 | 15 |