Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 11. september 2020 17:56
Aksentije Milisic
Pólland: Böddi spilaði í jafnteflisleik
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Böðvar Böðvarsson og félagar í Jagiellonia Bialystok mættu Podbeskidzie Bielsko-Biala í þriðju umferð í pólsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Böðvar spilaði allan leikinn hjá heimamönnum sem voru 2-0 undir í hálfleik en Kamil Bilinski og Michal Rzuchowski skoruðu mörkin fyrir gestanna.

Heimamenn gáfust ekki upp og jöfnuðu leikinn með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks. Jakov Puljic og Jesus Imaz gerðu mörkin fyrir Jagiellonia.

Meira var ekki skorað og eru heimamenn nú í fjórða sæti deildarinnar með 5 stig eftir 3 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner