Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   lau 11. september 2021 17:19
Haraldur Örn Haraldsson
Kiddi Jóns eftir að hafa fengið Covid: Mér finnst ég ennþá svona 80%
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Jónsson leikmaður KR spilaði mjög vel í sigri gegn Keflavík í dag og var hann valinn næstbesti maður vallarins.

Kristinn var tekinn í viðtal eftir leik og þetta hafði hann að segja um hvernig leikurinn spilaðist.

„Mér líður bara mjög vel, mér fannst þetta flottur sigur. Ég hefði viljað setja þriðja markið fyrr og klára leikinn og sigla þessu kanski þægilegra heim en annars kanski bara fínt bara heilt yfir mjög góður leikur af okkar hálfu."

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  2 KR

Kristinn fékk Covid nýlega en það stöðvaði hann ekki frá því að koma inn á í síðasta leik og skora mark og síðan spila feykilega vel í þessum leik. Hann var spurður hvernig honum liði núna eftir þetta.

„Mér líður ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá líður mér ekkert svakalega vel eftir þetta covid. Mér finnst eins og sé ennþá svona 80%. Það eru búið að vera erfðar æfingar í vikunni og maður finnur aðeins fyrir þessu ennþá þannig ég ætla bara að vera hreinskilinn með það en mér finnst þetta vera að koma svona með hverjum deginum sem líður þannig ég vona að ég verði ferskari næstu helgi."

Kristinn var einnig spurður hver markmiðin hjá KR væru í síðustu 2 leikjunum.

„Það er einfalt. Það er bara úrslitaleikur fyrir okkur í næsta leik og að sjálfsögðu förum við þangað og ætlum að taka 3 stig svo er það bara að klára restina og sjá hvað það skilar okkur."
Athugasemdir
banner
banner
banner