Fotbolti.net
11.09.23 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Geggjað að hoppa beint í U21 - „Vona að ég hafi fengið smá af því líka"

Auglýsing
Lúkas með bros á vör.

Lúkas með bros á vör.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Lúkas Petersson er mættur í U21 landsliðshópinn eftir að hafa heillað mikið með U19 landsliðinu í lokakeppni Evrópumótsins í sumar.
Lúkas, sem er 19 ára gamall og á mála hjá Hoffenheim í Þýskalandi, er líklegur til þess að byrja fyrsta leik í undankeppni Evrópumótsins á morgun þegar strákarnir mæta Tékklandi.

„Það er geggjað að fá að hoppa beint frá U19 og upp í U21. Það er góð tilfinning hjá mér og í liðinu," sagði Lúkas í viðtali fyrir æfingu U21 landsliðsins í dag.

Lúkas segir að upplifunin af Evrópumótinu með U19 landsliðinu í sumar hafi verið hrikalega góð. Það hafi verið dýrmæt reynsla. „Við ætlum að taka þessa orku með í U21."

„Ég var mjög ánægður með mína frammistöðu. Ég þurfti að komast inn í fyrsta leikinn en svo átti ég mjög góða leiki í öðrum og þriðja leiknum. Liðið stóð sig bara mjög vel og ég er stoltur af okkur öllum. Það var frekar svekkjandi að komast ekki upp úr riðlinum. Við gerðum okkar besta."

Hann vonast til að byrja gegn Tékklandi á morgun.

„Ég vona alltaf. Ég veit ekki enn hvað þjálfarinn er að hugsa en ég vona að ég geti sýnt mig á æfingunum núna. Ég vona að ég verði í byrjunarliðinu á morgun," segir Lúkas en markmiðið er að komast aftur í lokakeppni EM.

Stoltur af pabba
Lúkas er á mála hjá Hoffenheim þar sem hann er núna að stíga upp í U23 liðið. Lúkas hefur búið í landinu alla tíð, en foreldrar hans eru Alexander Petersson og Eivor Pála Blöndal. Þau voru bæði í landsliðinu í handbolta. Alexander er algjör goðsögn á Íslandi en hann var stór hluti af handboltalandsliðinu sem vann silfurverðlaun á Ólympíuverðlaunum í Peking árið 2008. Alexander, sem er 43 ára, tók nýverið fram skóna og byrjaði aftur í handbolta. Hann er leikmaður Vals í Olís-deildinni.

„Þetta er svakalegt. Ég skil ekki alveg hvernig það er hægt, að koma til baka eftir ár þegar þú ert 43 ára. Það er gaman. Ég er glaður og stoltur af pabba."

Úr hverju er hann eiginlega gerður?

„Það er góð spurning. Ég vona að ég hafi fengið smá af því líka," sagði Lúkas léttur en allt viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Leikur Íslands og Tékklands er á morgun og hefst hann klukkan 16:30. Fótbolti.net verður með textalýsingu frá leiknum, að sjálfsögðu.
Lúkas var með U19 landsliðinu á Evrópumótinu í sumar.

Lúkas var með U19 landsliðinu á Evrópumótinu í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Alexander Petersson er faðir markvarðarins.

Alexander Petersson er faðir markvarðarins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.