Fotbolti.net
11.10.16 - 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Orri Sigurður: Ég er mjög öruggur fyrir þennan leik

Auglýsing
Orri Sigurður

Orri Sigurður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Orri Sigurður Ómarsson, miðvörður Vals og U-21 árs landsliðsins er mjög brattur fyrir stórleikinn gegn Úkraínu í dag.

Íslenska liðið tryggir sér inná EM í Póllandi sem fram fer næsta sumar, með sigri og er Orri sigurviss en bendir samt sem áður á að Úkraína sé með mjög gott lið.
„Ég er mjög öruggur fyrir þennan leik og við eigum að vinna þetta. Það er samt rugl hvað Úkraína eru með fá stig í þessum riðli miðað við leikina sem þeir hafa spilað.\"

„Þeir hafa verið betri í öllum leikjunum, líka á móti okkur, þó við höfum unnið þá. Þetta er frábært lið og við verðum að koma sterkir inn í leikinn.\"

Hann segir þolinmæði vera lykilinn að sigri í dag.

„Við verðum að vera þolinmóðir, við erum þekktir fyrir að fá lítið á mörkum á okkur og við skorum eiginlega alltaf,\" sagði Orri.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.