Fotbolti.net
11.10.18 - 22:23
Daníel Rúnarsson

Raggi Sig: Fannst við eiga skilið að vinna Frakka

Auglýsing
Byrjunarlið Íslands í kvöld.

Byrjunarlið Íslands í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Icelandair
<i>„Þetta var flottur leikur hjá okkur, leiðinlegt að hafa misst þetta niður en við getum verið stoltir af þessum leik þó þetta hafi verið mjög svekkjandi,"</i> sagði Ragnar Sigurðsson miðvörður Íslands eftir 2-2 jafntefli við Heimsmeistara Frakka í kvöld en Ísland leiddi lengst af 0-2.
Frakkar settu leikinn upp sem partý þar sem átti að fagna Heimsmeistaratitlinum með heimamönnum. Ísland mætti hinsvegar til að skemma partýið.

„Ég hafði ekki hugmynd um það en við erum mjög ánægðir með frammistöðuna.Það er bara svekkjandi að hafa ekki náð að klára Frakkana því mér fannst við eiga það skilið í dag."

Ísland tapaði stórt gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni í síðasta mánuði. Hver var helsti munurinn á að spila þennan leik og þá?

„Hinir tveir leikirnir voru fyrstu tveir leikirnir eftir miklar breytingar, nýir þjálfarar og nýjar áherslur. Hlutir sem við áttum eftir að æfa betur og fara í gegnum sem við náðum að gera betur núna. Ég er viss um að þetta sé á réttri leið."

Ísland mætir svo Sviss heima á mánudaginn í Þjóðadeildinni.

„Við erum búnir að vera sterkir á heimavelli í mörg ár og vitum að við eigum góða möguleika á að vinna Sviss heima."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.