Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. október 2020 14:36
Brynjar Ingi Erluson
Keita kominn með veiruna - Ekki með í grannaslagnum
Naby Keita er með veiruna
Naby Keita er með veiruna
Mynd: Getty Images
Naby Keita, miðjumaður Liverpool, er smitaður af Covid-19, en þetta kemur fram í frönskum miðlum. Hann er þriðji leikmaður Liverpool til að greinast með veiruna á stuttum tíma.

Keita og fjórir aðrir landsliðsmenn Gíneu-Bissá fengu niðurstöður úr skimun á föstudag og var smitið svo endanlega staðfest í dag þegar niðurstöður úr seinni skimun bárust.

Keita er nú í sóttkví og ljóst að hann mun ekki ná leik Liverpool gegn Everton á laugardag. Liverpool á þó enn eftir að staðfesta fregnirnar.

MIðjumaðurinn knái hefur byrjað alla leiki Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og því mikill missir fyrir liðið.

Þetta er þriðji leikmaður Liverpool sem greinist með veiruna á nokkrum vikum en spænski miðjumaðurinn Thiago fékk veiruna fyrir rúmum tveimur vikum og þá greindist Sadio Mane með hana á dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner