Fotbolti.net
04.07.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sveindís stimplaði sig inn eftir meiðsli - Þorleifur lagði upp

Sveindís stimplaði sig inn eftir meiðsli - Þorleifur lagði upp
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hertz
Sveindís Jane Jónsdóttir sneri aftur inn á völlinn í nótt eftir meiðsli.

Sveindís spilaði sinn fyrsta leik í rúman mánuð en hún gat ekki verið með íslenska landsliðinu í byrjun síðasta mánaðar í tveimur leikjum í undankeppni HM.
Hún var mætt aftur inn á völlinn í nótt þegar Angel City vann góðan sigur á Orlando Pride. Hún skoraði seinna mark liðsins í byrjun seinni hálfleiks í 2-0 sigri. Angel City er í 9. sæti með 16 stig eftir 12 umferðir.

Þorleifur Úlfarsson lagði upp í svekkjandi jafntefli Loudoun gegn Sporting Jax í USL deildinni í Bandaríkjunum. Hann lagði upp jöfnunarmark á 81. mínútu, Loudoun komst síðan yfir í uppbótatíma en Sporting Jax náði að tryggja jafntefli í blálokin.

Loudoun er í 11. sæti með 11 stig eftir 14 umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.