Jóhann Birnir: Ekki alveg búið að detta okkar megin


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Blendnar tilfinningar, ég er mjög ánægður með spilamennskuna, óánægður með að tapa. Heilt yfir fannst mér við vera góðir í þessum leik" sagði Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR eftir tap á heimavelli gegn Aftureldingu.
Átti ÍR verðskuldað að fá stig eða sigurinn jafnvel?
„Ef við hefðum unnið þennan leik þá hefði það verið verðskuldað. Ég meina þeir fá bara gefins víti eða þannig séð óheppni á annarri mínútu, eftir það vorum við að sækja jöfnunarmarkið."
„Mér fannst við vera yfir höfuð meira að reyna sækja jöfnunarmarkið og þeir virtust bara vera klárir í það að reyna halda því, sem þeir gerðu vel."
Fannst þér ÍR skapa nóg af góðum færum í dag?
„Við fengum kannski ekki mikið af dauðafærum þannig séð, en við komumst í rosalega margar stöður, margar krossstöður, margar fyrirgjafir, svona góðar stöður ofarlega á vellinum sem við þurfum að nýta betur. Þannig að ég var mjög ánægður með það. Mér fannst við ná að spila okkur í þær stöður sem við þurfum, síðan vantaði extra gæðin til að klára. Ef við spilum svona í öllum okkar leikjum þá eru meiri líkur en ekki að við vinnum leikina, þetta bara datt ekki í dag."
Næsti leikur er gegn Þrótti.
„Bara hörkuleik. Það er Afturelding, Þróttur, Grindavík og Fylkir, þetta eru svona næstu lið. Þetta eru allt erfiðir leikir í þessari deild, þetta er jöfn deild, en við erum á pari við öll lið í þessari deild. Þetta er ekki alveg búið að detta okkar megin."
Full viðtal í spilaranum fyrir ofan


