Jói Kalli um umdeild ummæli sín: Fullorðnir karlmenn sem geta höndlað þetta


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst fyrri hálfleikurinn hjá okkur nokkuð góður. Við komum af krafti inn í þennan leik og náum forystunni, það var pínu svekkelsi að fá mark í andlitið strax eftir það. Fyrri hálfleikurinn að mörgu leiti bara góður, sköpum okkur nokkur færi og hefðum kannski getað skorað meira í fyrri hálfleiknum. Svo þegar líður á leikinn þá ná þeir að þrýsta okkur til baka og við þurfum að verjast frekar mikið á okkar eigin vallarhelmingi í seinni hálfleik, og náum ekki alveg að stíga nógu grimmt til þess að pressa á þá. Svo eru Stjörnumenn góðir að halda boltanum og með fullt af góðum mönnum til að stýra uppspilinu, og Árni Snær hörku góður í því líka. Þannig það gerði okkur svolítið erfitt fyrir," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH eftir 2-2 jafntefli við Stjörnuna í kvöld.

Jói Kalli gagnrýnir eigin leikmenn - „Jökull gefur þeim bara mark"
FH-ingar hafa núna ekki tapað í fjórum leikjum í röð og svo bæta þeir við nokkrum leikmönnum þegar glugginn opnar. Það er því ástæða fyrir bjartsýni í Hafnarfirði.
„Það er andi í þessum hóp og gæði. Menn eru tilbúnir að vinna hart að sér og það er náttúrulega bara gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að standa saman og leggja hart að okkur. Við erum bara klárir í það allir sem einn. Það eru líka gæði í þessum hóp og við getum búið til hættulegar stöður, þannig að við byggjum klárlega á þessu. Tökum þessa frammistöðu og síðustu þrjár frammistöður hafa verið að mörgu leiti góðar. Þannig við höldum áfram að byggja ofan á það," sagði Jóhannes.
Jóhannes gagnrýndi nokkra af sínum eigin leikmönnum eftir síðustu umferð þar á meðal Jökul Andrésson og Kristján Flóka Finnbogason. Hann segist hins vegar standa við orð sín.
„Það eru öflugir karakterar í þessum hóp og þetta eru bara fullorðnir karlmenn sem geta höndlað það hvort sem það sé ég sem að segi eitthvað eða einhverjir aðrir. Sterkir, öflugir, samheldnir og það er það sem að skiptir mestu máli. Við höldum bara áfram, það eru mistök í fóboltaleikjum og við þurfum að vera nógu stórir í okkur þegar við erum gagnrýndir og svara því. Það er það sem að skiptir máli í fótbolta, ég held að það sé enginn sem mun spila hinn fullkomna leik í fótbolta, ég held að það sé ekki til. Þannig að við erum bara sterkir og stöndum saman í þessu. Þannig við höldum bara áfram að ýta við hvorum öðrum og reyna að gera hlutina betur, það er bara markmiðið okkar sem hópur," sagði Jóhannes.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


