Fotbolti.net
04.07.26 - 12:22
Brynjar Ingi Erluson

Tók fram úr Casillas og er nú vinsælasti markvörðurinn á Instagram

Vozinha

Vozinha

Canon

Mynd: EPA

Enginn markvörður er með fleiri fylgjendur á Instagram en Vozinha, sem stóð í marki Grænhöfðaeyja á heimsmeistaramótinu.
Heimsmeistaramótið er ævintýralegt og hefur gefið mönnum ótrúleg tækifæri.

Það á sérstaklega við um leikmenn frá minni þjóðum og það hefur heldur betur sannast í tilviki hins fertuga Vozinha, sem hefur verið einn besti markvörður mótsins.

Vozinha fékk rúmlega 14 milljónir nýrra fylgjenda eftir frammistöðu sína í markalausa jafnteflinu gegn Spáni í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Vinsældir hans héldu áfram að aukast næstu daga og nú er hann orðinn sá vinsælasti á Instagram.

Iker Casillas, fyrrum markvörður Real Madrid og spænska landsliðsins, var með flesta fylgjendur allra markvarða heims, eða um 20 milljónir, en Vozinha tók fram úr honum eftir leikinn gegn Argentínu.

Vozinha er nú með rúmlega 21 milljón fylgjenda. Það er eiginlega ótrúlegt að hugsa til þess að hann sé með fleiri fylgjendur en markverðir á borð við Gianluigi Buffon, Manuel Neuer, Thibaut Courtois, Alisson Becker og fleiri, en það er raunin.

Vozinha á ekki mörg ár eftir í fótboltanum, en það er góður möguleiki á að hann fái spennandi félagaskipti í sumar og þéni vel á síðustu metrunum.

Instagram-vinsældirnar munu svo eflaust opna fleiri dyr fyrir hann og skapa honum ný viðskiptatækifæri í framtíðinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.