Gunnar Heiðar: Við getum ekki haldið að við séum alltof góðir þegar við vinnum einn leik
Auglýsing

Gunnar Heiðar var ánægður með hvernig liðið vann úr leikbanni þriggja leikmanna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er bara vonsvikinn, segi alveg eins og er. Erfitt að sjá tvö fyrstu skotin á mörkin okkar verða að mörkum, sagði Gunnar Heiðar, þjálfari HK, eftir 2-1 tap gegn Gróttu í 12. umferð Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: Grótta 2 - 1 HK
„Við vorum búnir að vera að spila virkilega vel í síðustu leikjum. Manni fannst þetta vera að koma hjá okkur, það var búið að vanta stöðugleikann. Mér fannst það vera á góðri leið þannig að þetta er vont fyrir strákanna að fá ekkert út úr þessum leik. Af því að það eru þessi tvö atriði í byrjun leiks þar sem við erum sofandi en annars sköpum við okkur fullt af færum. Við klúðrum víti og allt til þess að fá eitthvað meira út úr þessu en núll stig, sagði Gunnar.
Það hefur vantað upp á stöðugleika í leik HK liðsins í sumar. Liðið hefur átt erfitt með að binda sigurleiki saman og gengi liðisins á útivelli verið slakt.
„Þetta er erfitt, það er greinilega eitthvað aðeins sem vantar upp á hjá okkur til þess að halda þessari litlu einbeitingu í viðbót sem þarf til að vinna leiki. Við getum ekki haldið það að við séum alltof góðir þegar við vinnum einn leik. Við þurfum að halda einbeitingu og halda öllu því sem við erum búnir að gera alla vikuna og byggja ofan á síðustu leikjum þar sem við höfum verið að gera vel. Mér fannst það vera kjörið tækifæri í dag til þess að geta haldið því áfram," sagði Gunnar að lokum.
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér fyrir ofan