Fotbolti.net
11.10.25 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fjórði sigur lærisveina Jóa Kalla í röð

Fjórði sigur lærisveina Jóa Kalla í röð
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

AB Kaupmannahöfn er á toppnum í C-deildinni í Danmörku eftir 11 umferðir en liðið er með tveggja stiga forystu á Naestved og fjögurra stiga forystu á Roskilde sem á leik til góða.

Liðið fékk Skive í heimsókn í gær. Adam Ingi Benediktsson var í markinu en Ægir Jarl Jónasson byrjaði á bekknum.
Leiknum lauk með 4-0 sigri AB. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari AB, setti Ægi Jarl inn á eftir rúmlega klukkutíma leik en þá voru úrslitin ráðin.

Næsti leikur liðsins er toppslagur gegn Naestved á útivelli þann 17. október.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.