11.10.26 - 12:31
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Markahæsti maður deildarinnar sá rautt fyrir ljótt brot

Malen sá rautt fyrir ljóta tæklingu

Mynd: EPA

Malen sá rautt fyrir ljóta tæklingu

Mynd: EPA
Como 0 - 0 Roma
Rautt spjald: Donyell Malen, Roma ('53)
Rautt spjald: Donyell Malen, Roma ('53)
Como og Roma gerðu markalaust jafntefli í 6. umferð Seríu A á Ítalíu í dag. Gestirnir frá Róm léku manni færri mestallan síðari hálfleik eftir að Donyell Malen fékk beint rautt spjald.
Roma byrjaði betur og Paulo Dybala fékk færi í teignum eftir að Malen missti boltann frá sér. Skot Argentínumannsins var hins vegar slakt og fór beint á markvörð Como.
Lorenzo Pellegrini skaut síðan í stöng áður en heimamenn færðu sig upp á skaftið. Maxence Caqueret komst í ágætt færi en skaut framhjá.
Como-menn voru æfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Wesley keyrði aftan í Assane Diao sem var að sleppa í gegn. Þeir vildu bæði aukaspyrnu og rautt spjald á brasilíska bakvörðinn en fengu hvorugt.
Roma varð síðan fyrir áfalli snemma í síðari hálfleik þegar Malen, markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu, fór illa í Kaiki. Dómarinn var ekki í vafa og sendi hann beint í sturtu.
Tíu Rómverjar héldu þó út og lítið var um tilþrif það sem eftir lifði leiks. Fyrsta markalausa jafntefli tímabilsins staðreynd, en Roma er í öðru sæti með 14 stig eftir sex leiki á meðan Como er í sjötta með ellefu stig.