Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 11. desember 2019 14:38
Magnús Már Einarsson
Tierney mögulega frá keppni þar til í mars
Arsenal hefur staðfest að vinstri bakvörðurinn Kieran Tierney fór úr axlarlið í sigrinum á West Ham í fyrradag.

Tierney meidditst í fyrri hálfleik en Sead Kolasinac leysti hann af hólmi.

Tierney gæti verið frá keppni í allt að þrjá mánuði en ekki er ennþá ljóst hvort hann þurfi að gangast undir aðgerð eða ekki.

Nicolas Pepe, Hector Bellerin, Rob Holding og Dani Ceballaos eru allir á meiðslalistanum hjá Arsenal fyrir leikinn gegn Standard Liege í Evrópudeildinni á morgun.

Pepe og Bellerin eru í kapphlaupi við tímann fyrir leikinn gegn Manchester City á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner