Róbert Örn: Ætla ekki að kalla Daða Lár varamarkmann
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við áttum mjög góðan leik í dag, og ekki mikið að gera hjá mér sem eru bestu leikirnir fyrir mig,\" sagði Róbert Örn Óskarsson markvörður FH við Fótbolta.net í dag eftir að liðið vann Stjörnuna 1 - 2 í Fótbolta.net mótinu.
,,Við vorum að halda boltanum rosalega vel og spila með miklu sjálfstrausti. Vörnin var að standa sig vel líka svo ég hef ekki yfir neinu að kvarta í dag.\"
Róbert Örn fékk þau skilaboð opinberlega frá Heimi Guðjónssyni þjálfara FH liðsins í haust að hann yrði aðalmarkvörður FH í ár eftir að Gunnleifur Gunnleifsson fór til Breiðabliks.
,,Mér líst hrikalega vel á það og er mjög ánægður með að mér er sýnt það traust. Ég held að það séu ákveðnir aðilar innan klúbbsins sem hafa alltaf haft trú á mér og ég ætla að sanna fyrir þeim núna að ég get staðið undir því.\"
,,Það er búið að vera hlykkjóttur vegur á leiðinni hingað og ég ætla að hafa hann beinan það sem eftir er.\"
Daði Lárusson sneri aftur í FH í vetur frá Haukum til að vera varamarkvörður liðsins.
,,Varamarkvörður og ekki varamarkvörður. Hann er fertugur en er ennþá drullu öflugur. Ég ætla ekki að kalla Daða varamarkmann. Ég spilaði í dag og er ánægður með að ég spilaði í dag og ef ég spila næsta leik þá er það frábært líka,\" sagði Róbert en er hann semsagt hræddur við samkeppnina frá Daða?
,,Þegar Daði Lár er annars vegar er ekkert öruggt. Ég veit alveg af því,\" sagði hann.