Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 12. janúar 2020 13:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Chelsea og Inter nálægt samkomulagi um Giroud
Oliver Giroud er líklega á leið til Inter.
Oliver Giroud er líklega á leið til Inter.
Mynd: EPA
Það stefnir allt í það að franski framherjinn Oliver Giroud sem leikur með Chelsea sé á förum frá félaginu í janúar.

Giroud náði samkomulagi við Inter fyrir helgi en félögin eru enn í viðræðum um kaupverðið.

Talsverður munur var í fyrstu á verðinu sem Chelsea vildi fá fyrir hann og Inter var tilbúið til að borga en samkvæmt heimildum Sky Sports er nú góður gangur í viðræðunum.

Félögin vilja klára félagaskiptin sem fyrst, Lyon er einnig sagt áhugasamt um að fá þennan 33 ára gamla framherja í sínar raðir en eins og áður segir þá stefnir allt í að Giroud fari til Inter.
Athugasemdir
banner
banner
banner