Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 12. febrúar 2020 20:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu jöfnunarmark Jóns Daða - Á tánum í sníkjunni
Mynd: Getty Images
Jón Daði Böðvarsson er í byrjunarliði Milwall sem spilar þessa stundina gegn Fulham í ensku Championship deildinni.

Staðan er 1-1 í hálfleik og skoraði Jón Daði jöfnunarmark heimamanna í Millwall eftir átta mínútna leik.

Aleksandar Mitrovic kom Fulham yfir strax á þriðju mínútu þegar hann kom boltanum í netið eftir fyrigjöf. Jöfnunarmark Jóns Daða kom eftir hornspyrnu þar sem boltinn barst á nærstöngina og Jón var þar réttur maður á réttum stað.

Mark Jóns má sjá hér. Mark Mitrovic má sjá hér.

Við þetta má bæta að Jed Wallace þrumaði knettinum í slána og yfir af vítapunktinum þegar hann hefði getað komið Millwall yfir á 23. mínútu leiksins. Mark Jóns er hans annað á þessu ári en hann skoraði einnig gegn Reading í janúar.


Athugasemdir
banner
banner
banner