Bayern og Real vilja Dalot - Liverpool að vinna í Kerkez - Newcastle ætlar að reyna við Delap
   mið 12. mars 2025 13:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrsti landsliðshópur Arnars - Aron Einar í hópnum en Jói Berg og Gylfi ekki með
Icelandair
Aron Einar er í hópnum.
Aron Einar er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert er mættur aftur!
Albert er mættur aftur!
Mynd: Mummi Lú
Jóhann Berg er óvænt ekki með.
Jóhann Berg er óvænt ekki með.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrsti hópur nýja landsliðsþjálfarans, Arnars Gunnlaugssonar, var opinberaður rétt í þessu. Arnar tók við sem þjálfari liðsins í janúar en hann tók við af Norðmanninum Age Hareide sem hafði verið í eitt og hálft ár í starfi. Fyrstu leikir Arnars eru leikir gegn Kósovó í umspili um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar.

Fyrri leikurinn fer fram í Kósovó þann 20. mars og seinni leikurinn, heimaleikur Íslands, fer fram í Murcia á Spáni þann 23. mars. Heimaleikur Íslands getur ekki farið fram á Íslandi vegna vallarmála hér á landi. Framkvæmdir eru á þjóðarleikvanginum, Laugardalsvelli, sem stendur og er stefnan að vetrarleikir geti farið fram á Íslandi í framtíðinni.

Arnar velur 23 manna hóp og gerir fimm breytingar frá hópnum sem Hareide valdi fyrir leikina í nóvember. Albert Guðmundsson, Hákon Arnar Haraldsson, Kristian Nökkvi Hlynsson, Þórir Jóhann Helgason og Bjarki Steinn Bjarkason koma inn í hópinn. Jóhann Berg Guðmundsson er ekki í hópnum. Þá voru miklar vangaveltur hvort að Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins, yrði í hópnum hjá Arnari en hann er ekki.

Hópurinn
Markmenn:
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 6 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 17 leikir
Lúkas J. Blöndal Petersson - TSG Hoffenheim

Útileikmenn:
Valgeir Lunddal Friðriksson - Fortuna Düsseldorf - 15 leikir
Bjarki Steinn Bjarkason - Venezia FC - 4 leikir
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F.C. - 55 leikir, 3 mörk
Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa SC - 104 leikir, 5 mörk
Guðlaugur Victor Pálsson - Plymouth Argyle F.C. - 47 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Stromsgodset - 7 leikir, 1 mark
Mikael Neville Anderson - AGF - 31 leikur, 2 mörk
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 19 leikir, 3 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Preston North End F.C. - 25 leikir, 1 mark
Þórir Jóhann Helgason - U.S. Lecce - 16 leikir, 2 mörk
Arnór Ingvi Traustason - IFK Norrköping - 63 leikir, 6 mörk
Júlíus Magnússon - IF Elfsborg - 5 leikir
Ísak Bergmann Jóhannesson - Fortuna Düsseldorf - 31 leikur, 4 mörk
Mikael Egill Ellertsson - Venezia FC -19 leikir, 1 mark
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha BSC - 42 leikir, 6 mörk
Albert Guðmundsson - ACF Fiorentina - 37 leikir, 10 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - Sparta Rotterdam - 2 leikir
Willum Þór Willumsson - Birmingham City F.C. - 15 leikir
Andri Lucas Guðjohnsen - K.A.A. Gent - 30 leikir, 8 mörk
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 14 leikir, 5 mörk
Fréttamannafundur Arnars í heild
Athugasemdir
banner
banner
banner