Arsenal á góða möguleika á að fá Rodrygo - Atletico leggur allt kapp á að fá Romero - West Ham hafnaði tilboði í Kudus
   fös 12. apríl 2024 09:05
Elvar Geir Magnússon
Ívar Orri dæmir leikinn áhugaverða í Garðabæ í kvöld
Ívar Orri Kristjánsson.
Ívar Orri Kristjánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
2. umferð Bestu deildar karla fer af stað í kvöld með mjög áhugaverðum leik Stjörnunnar og KR í Garðabænum. Stjarnan tapaði fyrir Víkingi í fyrstu umferð en KR vann sigur á Fylki í svakalegum leik.

Ívar Orri Kristjánsson mun dæma leikinn í kvöld en hann var mikið í umræðunni eftir fyrstu umferðina þar sem hann dæmdi ekki vítaspyrnu sem FH vildi fá.

Heimir Guðjónsson þjálfari FH lét óánægju sína í ljós með dómgæsluna, ekki bara vítaatvikið heldur áherslur dómaranna og spjaldaregnið sem hefur verið mikið í umræðunni.

Birkir Sigurðarson og Andri Vigfússon verða aðstoðardómarar í Garðabæ í kvöld. Gunnar Freyr Róbertsson verður fjórði dómari.

föstudagur 12. apríl
19:15 Stjarnan-KR (Ívar Orri Kristjánsson)

laugardagur 13. apríl
14:00 Breiðablik-Vestri (Sigurður Hjörtur Þrastarson)
15:00 KA-FH (Vilhjálmur Alvar Þórarinsson)

sunnudagur 14. apríl
17:00 HK-ÍA
19:15 Fylkir-Valur

mánudagur 15. apríl

Besta-deild karla
19:15 Fram-Víkingur R.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner