Fotbolti.net
12.05.15 - 13:30
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Man City á fjóra

Aguero og David Silva eru báðir í liðinu.

Aguero og David Silva eru báðir í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

36. umferðinni í ensku úrvalsdeildinni lauk í gærkvöldi þegar Swansea sigraði Arsenal á útivelli.

Hér að neðan má sjá úrvalslið umferðarinnar hjá whoscored.com en Manchester City á fjóra leikmenn í liðinu eftir að hafa burstað QPR.

Lukasz Fabianski hélt hreinu gegn sínum gömlu félögum í Arsenal í gær en hann átti sinn besta leik í treyju Swansea.

Geoff Cameron var öflugur í hægri bakverðinum hjá Stoke í 3-0 sigri á Tottenham og Robert Huth stóð vaktina vel í vörninni þegar Leicester sigraði Southampton. Jason Shackell hjálpaði Burnley að halda hreinu gegn Hull en sigur þar dugði ekki til að forðast fall.

Aleksandar Kolarov skoraði úr aukaspyrnu í 6-0 sigri Manchester City á QPR og hann er í liðinu eins og miðjumennirnir James Milner og David Silva sem voru einnig á skotskónum.

Riyad Mahrez skoraði fyrir Leicester gegn Southampton og miðjumaðurinn Steven Nzonzi gerði það sama fyrir Stoke gegn Tottenham. Þeir Victor Anichebe og Sergio Aguero leiða framlínua eftir að hafa báðir verið á skotskónum um helgina. Aguero var leikmaður helgarinnar en hann skoraði þrennu gegn QPR.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.