Fotbolti.net
12.05.17 - 21:41
Kristófer Kristjánsson

Stebbi Gísla: Hefðu þá átt að vera margar vítaspyrnur í leiknum

Auglýsing
Stefán Gíslason, þjálfari Hauka

Stefán Gíslason, þjálfari Hauka

Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Stefán Gíslason, þjálfari Hauka, var að vonum svekktur eftir að hans menn misstu niður tveggja marka forystu gegn Fram á Laugardalsvelli í Inkasso deildinni í kvöld.
Arnar Aðalgeirsson og Björgvin Stefánsson höfðu komið gestunum í tveggja marka forystu en Simon Smidt minnkaði muninn fyrir Fram með frábæru aukaspyrnumarki áður en Ivan Bubalo jafnaði leikinn í uppbótartíma úr vítaspyrnu.

„Ekki eins og staðan var orðin,\" sagði Stefán aðspurður hvort úrslitin væru heilt yfir sanngjörn.

„Að sjálfsögðu gerðum við það [að bakka of mikið], við vorum komnir 2-0 yfir og það er í eðli fótboltamannsins að halda fengnum hlut í þessari stöðu og við föllum í þá gryfju og gefum þeim of mikla hvatningu í leiknum og þeir nýta sér það.\"

Framarar fengu vítaspyrnu í blálokin þegar Gunnar Gunnarsson braut á Alex Frey Elíssyni og uppskáru úr henni jöfnunarmarkið en Stefáni fannst dómurinn harður.

„Ég sá þetta ekki þannig að ég geti dæmt um það, miðað við það sem ég sá þá hefðu átt að vera helvíti margar aukaspyrnur og vítaspyrnur í leiknum.\"

„Fyrir leik er 2-2 jafntefli á útivelli á móti Fram ekkert slæm úrslit en þetta er svekkjandi eins og staðan var orðin.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.