Florentino Perez, forseti Real Madrid á Spáni, hélt sögulegan og á sama tíma stórfurðulegan fréttamannafund í kvöld.
Margir voru að búast við því að Perez væri að fara tilkynna endurkomu Jose Mourinho til félagsins, en hann vildi lítið tjá sig um það. Hann var hins vegar mjög málglaður þegar það kom að öðrum málum en Real Madrid er að fara titlalaust í gegnum annað tímabilið í röð.
Boðar óvæntar kosningar
Á fundinum tilkynnti hann kosningar, aðeins ári eftir endurkjör sitt til þess að leyfa þeim sem eru ósammála honum að bjóða sig fram gegn honum.
„Mér þykir leitt að segja ykkur að ég mun ekki segja mig úr embættinu. Þeir sem vilja koma fram og mæta mér eru velkomnir til að gera það, en ég mun líka vernda réttindi meðlimi félagsins. Einhverjir halda að þeir geti sparkað mér úr félaginu, en þeir verða að skjóta mig til þess. Florentino fer ekki fet fyrr meðlimir félagsins ákveða annað.“
„Þeir sem vilja mæta mér eru velkomnir til þess, en ekki gera þetta bak við tjöldin. Ég hef beðið kjörstjórn félagsins að hefja ferlið að nýrri kosningu þar sem núverandi stjórn mun áfram gefa kost á sér,“ sagði Perez.
Sakar blaðamenn um að vera í herferð
Á fréttamannafundinum hélt hann því fram að spænska deildin og blaðamenn væru í herferð gegn Real Madrid.
„Ég er með sjö Meistaradeildartitla og sjö deildartitla. Ég hefði átt að vinna fjórtán deildartitla, en við vorum rændir. Á þessu tímabili voru átján stig rænd frá okkur. Við gerðum meira að segja myndband á RMTV þar sem við sýndum öll atvikin.“
„Ég er titlahæsti forseti sögunnar, ekki gleyma því. Stuðningsmennirnir og meðlimir Real Madrid standa á bak við mig.“
Einnig talaði hann um lekann innan félagsins, en þar talaði hann sérstaklega um handalögmálin á milli Federico Valverde og Aurelien Tchouameni. Valverde þurfti að fara á sjúkrahús eftir slagsmálin.
„Það var mjög slæmt en það sem var verra er að það kom í fjölmiðlum. Þetta gerist á hverju ári, en þið látið þetta líta út fyrir að vera stórmál. Upplýsingalekinn er töluvert verri fyrir Real Madrid,“ sagði Perez sem var spurður hvað hann ætlaði að gera í lekanum. „Látið mig um þá. Treystið mér, ég mun sjá um þá,“ sagði Perez enn fremur.
Ásakanir á hendur Barcelona
Spánarmeistarar Barcelona fylgdust vel með fréttamannafundi Perez og voru óánægðir með ásakanirnar sem hann bar á Börsunga, en Perez talaði meðal annars um Negreira-skandalinn. José María Enríquez Negreira var varaformaður dómaranefndar spænska fótboltasambandsins fékk greiðslu frá Barcelona upp á 8,4 milljónir evra frá 2001 til 2018. Málið er til rannsóknar, en Perez ásakaði Barcelona um spillingu í kvöld.
„Við munum leggja fram 500 blaðsíðna skýrslu til UEFA þannig sambandið geti lokað þessu máli. Negreira-málið, er íþróttaspillingarmál, og er enn eftirmálar af því. Það eru dómarar frá því tímabili enn að dæma í deildinni,“ sagði Perez meðal annars.
Perez vísaði þá þeim sögum um að hann sé að glíma við krabbamein til föðurhúsanna.
„Heilsan mín er í góðu lagi. Ef mér hefði verið sagt að ég væri með krabbamein, þá þyrfti ég að fara á krabbameinsmiðstöð. Það hefði farið um allan heim. Þetta er ekki satt,“ sagði Perez.

