Gústi Gylfa: Hef fulla trú á að við getum haldið sæti okkar
Auglýsing

Ágúst Gylfason, þjálfari Gróttu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Gylfason, þjálfari Gróttu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við verðum léttleikandi og í góðu formi. Við ætlum okkur að gera góða hluti í sumar," segir Ágúst Gylfason, þjálfari Gróttu, í samtali við Guðmund Aðalstein Ásgeirsson, fréttamann Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild karla fer af stað um helgina og Grótta á leik gegn Breiðabliki í Kópavogi á sunnudagskvöld.

„Það er mikil eftirvænting hjá öllum fótboltaliðum og stuðningsmönnum í landinu. Þetta lítur bara vel út og ég held að það verði eins margir á völlunum og hægt er."
Allir spá Gróttu falli en Ágúst segist hafa fulla trú á því að liðið sé með burði til að halda sér í deildinni.
„Leikmenn eru tilbúnir að leggja mikið á sig. Með það að undirstöðu eru okkur allir vegir færir og við erum tilbúnir í sumarið. Þetta verður mikil skemmtun og við ætlum að gera okkar besta til að ná því markmiði að halda okkur í deildinni."
„Ég hef fulla trú á því að við getum haldið okkur í þessari deild."
Ágúst byrjar á sínum gamla heimavelli en tvö síðustu ár var hann með stjórnartaumana hjá Breiðabliki.
„Það er fínt að byrja þar. Það verður mjög hraður leikur og skemmtilegur. Vonandi verða úrslitin okkur hliðholl," segir Ágúst Gylfason.
1. umferð Pepsi Max
laugardagur 13. júní
20:00 Valur-KR (Origo völlurinn)
sunnudagur 14. júní
15:45 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
18:00 HK-FH (Kórinn)
20:15 Breiðablik-Grótta (Kópavogsvöllur)
mánudagur 15. júní
18:00 Víkingur R.-Fjölnir (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Fylkir (Samsung völlurinn)