EM kvenna: Vatnsblöðruárás á æfingu Íslands
Auglýsing

Það var létt yfir íslensku stelpunum í dag.

Mynd: Fótbolti.net

Höfuðstöðvar íslenska kvennalandsliðsins færðust frá Kalmar yfir til Växjö í dag. Þar verður leikið gegn Þjóðverjum og Hollendingum, sunnudaginn 14. júlí og miðvikudaginn 17. júlí. Hópurinn þekkir ágætlega til á staðnum en þar var leikinn vináttulandsleikur gegn Svíum, 6. apríl síðastliðinn.
Växjö er í Smálöndum Svíþjóðar og þar búa um 62.000 manns. Borgin þykir ein sú \"grænasta\" í Evrópu en mikið er lagt í endurnýjanlega orku.
Växjö er mikill íþróttabær og íþróttaaðstaða þar mjög góð. Hið góðkunna knattspyrnufélag, Öster, er einmitt frá borginni og verður leikið á nýjum heimavelli þess félags.
Stelpurnar tóku sína fyrstu æfingu í Växjö áðan. Hún hófst þó ekki á áætluðum tíma þar sem rúta liðsins bakkaði á og þurfti að fá nýja rútu. Það tók þó ekki langan tíma að redda því.
Stelpurnar skelltu sér meðal annars í skotbolta í upphitun fyrir æfinguna í dag en þegar fjölmiðlamenn voru í viðtölum skall á óvænt vatnsblöðrustríð sem nokkrir leikmenn höfðu skipulagt. Hægt er að sjá stríðsástandið í sjónvarpinu hér að ofan.