Fotbolti.net
12.07.16 - 21:58
Arnar Daði Arnarsson

Brynjar: Ekki skjóta í bumbuna á þessum gæjum með vettlingana

Auglýsing
Brynjar: Ekki skjóta í bumbuna á þessum gæjum með vettlingana
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Við skoruðum allavegana loksins. Það hefur ekki gengið vel í sumar svo það er jákvætt. Svo er einnig jákvætt að fá stig,\"</i> sagði Brynjar Skúlason þjálfari botnliðs Hugins í Inkasso-deildinni eftir 1-1 jafntefli gegn HK í Kórnum í kvöld.

Huginn jafnaði metin á 95. mínútu eftir hornspyrnu eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.
„Í fyrri hálfleik vorum við lélegir en við vorum flottir í seinni hálfleik. Strákarnir sem komu inná voru flottir og gáfu okkur smá auka power svo við gætum fengið eitthvað útúr leiknum.\"

Ivan Eduardo Nobrega Silva kom inná í vinstri bakvörðinn í seinni hálfleik fyrir Huginn og átti góða innkomu.

„Við erum að spila þrjá leiki á sjö dögum. HK spilaði tveimur dögum áður en við spiluðum síðasta leik svo við ákváðum að rótera aðeins liðinu og sjá hvernig það kæmi út. Enda hefur ekkert gengið frábærlega hvorteðer. Hann kom inná og planið var að hann yrði mjög sóknarsinnaður bakvörður.\"

Huginn er þrátt fyrir jafnteflið á botni deildarinnar með fimm stig. Liðið hefur einungis skorað fimm mörk í fyrstu tíu leikjum deildarinnar.

„Við verðum bara að fá nýjan framherja. Einhvern sem getur potað. Við erum alveg að fá færi það vantar bara að hitta á markið og skjóta ekki í bumbuna á þessum gæjum með vettlingana. Það er eiginlega bara það. Verðum við ekki að fá einhvern sem getur það?

„Við hljótum að skoða okkar mál eins og allir aðrir. Eru ekki allir að segja að þeir ætli að skoða sín mál og haldi öllu opnu? Er það ekki klassískt?\" sagði Brynjar.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.