Fotbolti.net
12.07.26 - 14:44
Brynjar Ingi Erluson

„Gæti orðið besti leikmaður í sögu Englands“

Jude Bellingham

Jude Bellingham

Canon

Mynd: EPA

Gary Lineker, fyrrum landsliðsmaður Englands, segir Jude Bellingham í lykilstöðu um að verða besti leikmaður í sögu Englands.
Maður dagsins á HM - Fær of mikla gagnrýni
TENGT EFNI

Maður dagsins á HM - Fær of mikla gagnrýni

Bellingham hefur verið magnaður með Englandi síðan hann lék sinn fyrsta landsleik árið 2020.

Hann er á sínu fjórða stórmóti með landsliðinu. Hann fór með Englendingum í úrslit Evrópumótsins árið 2021 og í 8-liða úrslit HM 2022.

Hann fór aftur með Englandi í úrslit EM árið 2024 og skoraði svo bæði mörkin í sigrinum á Noregi í gær sem tryggði liðinu sæti í undanúrslitum HM.

Bellingham er kominn með sex mörk á HM og er aðeins þriðji Englendingurinn til að skora fimm mörk eða meira á einu heimsmeistaramóti, ásamt Gary Lineker og Harry Kane.

Lineker telur að Bellingham gæti orðið besti leikmaður í sögu enska landsliðsins haldi hann áfram á sömu braut.

„Ég myndi ganga svo langt að segja að það sé möguleiki á því að hann gæti einn daginn orðið besti leikmaður í sögu Englands. Það er mjög stórt kall.“

„Við höfum átt marga frábæra leikmenn. Sumir náðu ekki að standa sig nægilega vel fyrir land og þjóð, á meðan aðrir gerðu það.“

„Maður lítur til baka og horfir á menn eins og Bobby Charlton, sem ég myndi setja í þann hóp. Harry Kane er þar líka, ásamt fleirum.“

„En miðað við aldur Bellingham og það sem hann er að gera, að taka landsliðið á herðar sér og koma því yfir línuna, þá er hann ofurstjarna í mínum augum,“
sagði Lineker í Rest is Football á Netflix.
Gary Lineker er mikill aðdáandi Bellingham

Gary Lineker er mikill aðdáandi Bellingham

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.