Fotbolti.net
12.08.13 - 20:05
Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári: Möguleikarnir mun meiri en oft áður

Auglýsing
Eiður Smári: Möguleikarnir mun meiri en oft áður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Gott að komast aðeins heim í annað umhverfi og léttleika,\" sagði Eiður Smári Guðjohnsen á landsliðsæfingu Íslendinga fyrir vináttulandsleik gegn Færeyjum á miðvikudaginn.
Íslenska landsliðið er í harðri toppbaráttu í riðlinum sínum í undankeppni HM 2014 og á sjaldgæfan möguleika á að komast á HM gangi liðinu vel í síðustu leikjum undankeppninnar.

,,Ég held að við séum að fara inn í spennandi tímabil þar sem möguleikar okkar eru mun meiri en þeir hafa verið oft áður.

,,Ég held að aðalatriðið sé að við erum að koma saman og getum einblínt á nokkur atriði sem við viljum breyta eða gera betur. Við notum þennan leik í það, alveg sama hver andstæðingurinn er, með fullri virðingu.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.