Fotbolti.net
12.08.17 - 18:29
Magnús Már Einarsson

Kristján Guðmunds: Tek djammæli á sviðinu

Auglýsing
Kristján í Laugardalnum í dag.

Kristján í Laugardalnum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við höfðum trú á því að við myndum vinna og vorum með solid upplegg í leikinn. Lykilinn var að vilja halda boltanum gegn FH. Við erum komnir með mjög gott fótboltalið og þetta tókst mjög vel,\" sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, eftir að liðið tryggði sér bikarmeistaratitilinn með 1-0 sigri á FH í dag.

Stemningin í stúkunni var gríðarlega mikil hjá Eyjamönnum en þar var gítarspil og söngvar.
„Þetta var magnað. Við vorum búin að tala um að það yrði að vera stemning í stúkunni. Við settum upp tónlist og skemmtilegheit í anda þjóðhátíðar. Fólk var að syngja að tralla og við heyrðum alltaf í þeim.\"

ÍBV er í fallsæti í Pepsi-deildinni og framundan er fallbráttuslagur gegn Víkingi Ólafsvík á miðvikudag. Fyrst verður fagnað í nótt.

sagði Kristján en hann ætlar að stíga á svið í nótt og fagna.

„Ég tek eitthvað gott lag. Djammæli eða eitthvað,\" sagði Kristján hress að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heilds inni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.