Fotbolti.net
12.08.18 - 21:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Túfa: Það er erfitt að vinna svona leiki

Auglýsing
Túfa: Það er erfitt að vinna svona leiki
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Túfa, þjálfari KA, var sáttur með sigurinn gegn botnliði Keflavíkur í Pepsi-deildinni í kvöld.
Lokatölur voru 3-0, Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum og Ásgeir Sigurgeirsson var líka á skotskónum.

„Ég er mjög ánægður að vinna þennan leik,\" sagði Túfa.

„Það er erfitt að vinna svona leiki þar sem allir skrifa um að við eigum að vinna - Keflavík er með flotta unga stráka sem gefa ekkert eftir, en við skorum mark á réttum tíma og mér fannst aldrei hætta að við myndum fá á okkur mark.\"

Seinni vítaspyrnudómurinn sem féll með KA þótti umdeildur.

„Mér fannst þetta pjúra brot, ég get ekki séð hvort þetta var fyrir innan teig eða utan hans. Ég treysti Pétri fullkomlega, hann er búinn að vera einn besti dómari sumarsins.\"

„Ég horfði á síðustu þrjá leiki Keflavíkur og við undirbjuggum okkur mjög vel. Það eina sem kom mér á óvart var að Ísak Óli var fremstur á miðjunni, ég hélt að hann myndi spila sem hafsent.\"

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.