Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. ágúst 2020 10:37
Magnús Már Einarsson
Heimir biður um að fá Suarez til Al Arabi
Mynd: Getty Images
Mitch Freeley, blaðamaður BeIN Sport í Katar, greindi frá því um helgina að Al Arabi sé að reyna að fá Luis Suarez í sínar raðir frá Barcelona.

Freeley greinir frá því á Twitter í dag að Heimir Hallgrímsson, þjálfari Al Arabi, hafi beðið félagið um að fá upplýsingar frá umboðsmönnum Suarez um það hvað það gæti kostað að fá hann til Katar.

Suarez er að spila með Barcelona í Meistaradeildinni í augnablikinu en óljóst er hvað tekur við hjá þessum 33 ára gamla Úrúgvæa eftir tímabilið.

Heimir hefur þjálfað Al Arabi í rúmt eitt og hált ár en landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson spilar með liðinu. Þá er Bjarki Már Ólafsson í þjálfarateymi Heimis.

Freeley greinir einnig frá því að Al Gharafa og Al Duhail í Katar hafi ekki áhuga á Suarez eins og orðrómur hefur verið um.


Athugasemdir
banner
banner