Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 12. ágúst 2020 14:25
Magnús Már Einarsson
Óli Kalli á leið í FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjörvar Hafliðason, Dr. Football, greinir frá því að Ólafur Karl Finsen sé á leið til FH í dag.

Valur hafnaði 350 þúsund króna tilboði frá FH á dögunum en félögin hafa nú náð saman.

Ólafur Karl er á sínu þriðja tímabili hjá Val en samningur hans við félagið átti að renna út í haust.

Ólafur Karl er 28 ára gamall en hann hefur skorað 32 mörk í 132 leikjum í Pepsi-deildinni á ferli sínum.

Í sumar hefur Ólafur Karl lítið spilað en hann hefur komið við sögu í einum leik í Pepsi Max-deildinni með Val og einum leik í Mjólkurbikarnum.




Athugasemdir
banner
banner