12.08.26 - 09:26
Elvar Geir Magnússon
Memphis reiður út í Corinthians

Memphis í leik með Corinthians.

Mynd: EPA

Memphis er markahæsti leikmaður hollenska landsliðsins frá upphafi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Memphis í leik með Corinthians.

Mynd: EPA
Memphis Depay segir að brasilíska félagið Corinthians hafi svikið sig og að hegðun þess sé óásættanleg.
Félagið ákvað að framlengja ekki samningi við Memphis en þessi fyrrum leikmaður Manchester United og Barcelona segir að samkomulag hafi náðst um endurnýjun áður en félagið hafi ákveðið að svíkja það.

„Ég sýndi félaginu virðingu í gegnum allt ferlið en nú neyðist ég til að bregðast hart við til að gæta hagsmuna minna. Á næstu dögum mun ég tjá mig opinberlega, en þið megið treysta því að ég mun ekki sætta mig við þessa framkomu," segir hinn 32 ára gamli Memphis.
Memphis skoraði 20 mörk í 79 leikjum fyrir Corinthians og átti þátt í að liðið vann brasilísku bikarkeppnina árið 2025 og Ofurbikar Brasilíu fyrr á þessu ári. Hann kom til félagsins 2024.
Corinthians segir að ákvörðunin um að framlengja ekki samninginn hafi ráðist af fjárhagsástæðum. „Við viðurkennum að þetta var erfið ákvörðun, en hún var tvímælalaust nauðsynleg fyrir fjárhagsstöðu Corinthians."
Memphis er markahæsti leikmaður hollenska landsliðsins frá upphafi en tókst ekki að skora í þeim þremur leikjum sem hann spilaði þegar liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins 2026.